Tónlistarskóli Reykjanesbæjar - Ræstitæknir
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar leitar að kraftmiklum og þjónustulunduðum ræstitækni til starfa. Um er að ræða 100% starf við ræstingar og umsjón með ýmsum daglegum verkefnum sem stuðla að snyrtilegu og notalegu starfsumhverfi fyrir nemendur og starfsfólk.
Skólinn er staðsettur að Hjallavegi 2 í Hljómahöll, þar sem einnig eru Rokksafn Íslands og Bókasafn Reykjanesbæjar. Ræstingarsvæðið nær yfir húsnæði tónlistarskólans, hluta af rýmum bókasafnsins sem áður tilheyrðu skólanum og sameiginleg rými á efri hæð.
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar er öflugur vinnustaður með um 50 starfsmenn þar sem ríkir góður starfsandi og fjölbreytt skólastarf.
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og er mikilvægt að starfsfólk endurspegli þau gildi í störfum sínum.
Viðkomandi fær góða tilsögn í þrifum og umhirðu hljóðfæra og annars viðkvæms búnaðar skólans.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg þrif á kennslustofum, skrifstofum, vinnuaðstöðu kennara, göngum og kaffistofu starfsfólks.
- Dagleg þrif á salernum.
- Laga til borð og stóla í kennslustofum.
- Umsjón með kaffistofu starfsfólks, þar á meðal síðdegiskaffi.
- Umsjón með innkaupum á hreinlætisvörum og vörum fyrir kaffistofu.
- Vökva og hirða um blóm í húsnæði skólans.
- Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum.
Menntunar og hæfniskröfur
- Reynsla af ræstingarstörfum er skilyrði.
- Námskeið eða menntun í ræstitækni er kostur.
- Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
- Enskukunnátta er æskileg.
- Þjónustulund, jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni.
- Sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni og áreiðanleiki.
- Stundvísi er mikilvæg
Hlunnindi:
- Bókasafnskort
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Um 100% starf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Launakjör eru í samræmi við samning Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Sótt er um á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is, undir „Laus störf“. Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið, ásamt upplýsingum um umsagnaraðila.
Öllum umsóknum verður svarað.
Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Upplýsingar gefur Haraldur Árni Haraldsson, skólastjóri, netfang: haraldur.a.haraldsson@tonrnb.is S. 863-7071 og Viktor Orri Árnason aðstoðarskólastjóri, netfang: viktor.o.arnason@tonrnb.is S. 662-4578.
Umsóknarfrestur til: 08. október 2026
Sækja um þetta starf
Deila starfi
Umhverfis- og framkvæmdasvið - Verkefnastjóri viðhalds og nýframkvæmda
Reykjanesbær leitar að verkefnastjóra til starfa við eignaumsýslu á umhverfis- og framkvæmdasviði. Starfið felur í sér verkefnastjórn nýframkvæmda og viðhalds fasteigna sveitarfélagsins, allt frá undirbúningi og áætlanagerð til eftirfylgni með framkvæmdum.
Við leitum að skipulögðum einstaklingi sem sýnir frumkvæði, vinnur sjálfstætt og á auðvelt með að eiga fagleg samskipti við ólíka aðila.
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í störfum sínum.
Helstu verkefni
- Skipulag og verkefnastjórn nýframkvæmda og stærri viðhaldsverkefna fasteigna.
- Gerð útboðsgagna, kostnaðar- og tímaáætlana og eftirfylgni með þeim.
- Þátttaka í undirbúningi og hönnun nýframkvæmda.
- Yfirferð og rýni hönnunargagna, tækniforskrifta, verktakasamninga og breytingabeiðna.
- Þátttaka í innkaupaferlum og mat á þjónustu og gæðum birgja.
- Samstarf og samskipti við verktaka, ráðgjafa og notendur mannvirkja.
- Þátttaka í fjárhagsáætlunargerð og þróun verkefna á sviðinu.
- Önnur verkefni í samráði við næsta yfirmann.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í byggingarverkfræði, byggingartæknifræði eða byggingarfræði, eða sambærileg háskólamenntun er skilyrði.
- Sveinsbréf í iðn- eða tæknigrein er mikill kostur.
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
- Þekking og reynsla af byggingarframkvæmdum er skilyrði.
- Þekking og reynsla af verkefnastjórnun er skilyrði.
- Sjálfstæð vinnubrögð, góð skipulagshæfni og hæfni til ákvarðanatöku.
- Góð samskiptahæfni og almenn tölvukunnátta.
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
Hlunnindi:
- Bókasafnskort
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Um 100% starf er að ræða og er æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Launakjör eru í samræmi við samning Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Sótt er um á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is, undir Laus störf. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir því hvernig menntun hans, reynsla og hæfni samræmast þeim hæfniskröfum sem gerðar eru til starfsins. Öllum umsóknum verður svarað.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Upplýsingar gefur Hreinn Ágúst Kristinsson deildastjóri Eignarumsýslu, netfang: Hreinn.a.kristinsson@reykjanesbaer.is
Umsóknarfrestur til: 08. október 2026
Sækja um þetta starf
Deila starfi
Umhverfis- og framkvæmdasviði - Verkefnastjóri skipulagsmála
Viltu taka þátt í að móta og þróa Reykjanesbæ til framtíðar?
Reykjanesbær er ört vaxandi sveitarfélag þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað undanfarin ár og fjölbreytt og spennandi verkefni eru framundan. Á umhverfis- og framkvæmdasviði starfar öflugur hópur fólks með fjölbreytta sérfræðiþekkingu sem vinnur saman að metnaðarfullri þróun sveitarfélagsins. Áhersla er lögð á vandað skipulag, fjölbreytt lóðaframboð og sjálfbæra þróun byggðar.
Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum verkefnastjóra skipulagsmála sem vill taka virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu Reykjanesbæjar. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem snýr meðal annars að skipulagsmálum, lóðarúthlutunum og stjórnsýslu tengdri málaflokknum.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á skipulags- og þróunarmálum, sýnir frumkvæði og fagmennsku og hefur ánægju af fjölbreyttum verkefnum. Viðkomandi þarf að geta stýrt verkefnum frá upphafi til enda, átt árangursríkt samstarf við ólíka hagaðila og tileinkað sér lög, reglur og stjórnsýslu sem tengjast starfssviðinu.
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í störfum sínum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með skipulagsverkefnum sveitarfélagsins.
- Umsjón með málsmeðferð og afgreiðslu skipulagstillagna.
- Umsjón með lóðarúthlutunum.
- Undirbúningur og þátttaka í fundum skipulagsráðs.
- Umsjón með innheimtu gatnagerðargjalda.
- Gerð og umsýsla lóðarleigusamninga.
- Samskipti og samstarf við íbúa, umsækjendur, ráðgjafa, hönnuði og aðra hagaðila.
- Önnur verkefni á sviði skipulagsmála eftir þörfum.
Menntunar- og hæfnikröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði skipulagsfræði, arkitektúrs eða landslagsarkitektúrs, eða önnur menntun sem uppfyllir viðeigandi skilyrði samkvæmt 5. mgr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
- Góð reynsla af skipulagsmálum og málsmeðferð skipulagsáætlana.
- Hæfni til að miðla upplýsingum og faglegri þekkingu á skýran hátt.
- Reynsla af opinberri stjórnsýslu og þekking á lagaumhverfi skipulagsmála er kostur.
- Reynsla af verkefnastjórnun og teymisvinnu.
- Góð almenn tölvukunnátta og þekking á teikni- og skipulagsforritum.
- Rík þjónustulund og framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði, nákvæmni og góð skipulagsfærni.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.
- Mjög góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig skýrt í ræðu og riti.
- Kunnátta í erlendum tungumálum er kostur.
Hlunnindi:
- Bókasafnskort
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Launakjör eru í samræmi við samning Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Sótt er um á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is, undir Laus störf. Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi hverrar hæfniskröfu um hæfni viðkomandi í starfið. Öllum umsóknum verður svarað.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Upplýsingar gefur Sveinn Björnsson, deildarstjóri byggingar- og skipulagsmála, netfang sveinn.bjornsson@reykjanesbaer.is S. 421 6700.
Umsóknarfrestur til: 06. október 2026
Sækja um þetta starf
Deila starfi
Viltu starfa hjá Reykjanesbæ? Almenn umsókn
Hjá Reykjanesbæ starfa um 1.200 manns í fjölbreyttum störfum, og við leitum reglulega að hæfileikaríku og jákvæðu fólki til að bætast í hópinn. Hér getur þú sent inn almenna umsókn til sveitarfélagsins.
Við bjóðum eingöngu tímabundin afleysingastörf sem vara að hámarki í 12 mánuði samfellt, t.d. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Ef þú hefur ákveðnar óskir um starfshlutfall eða tímavinnu, vinsamlegast taktu það fram í umsókninni. Tímabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst, en stjórnendur skoða gagnagrunninn okkar þegar störf losna og hafa samband við viðeigandi umsækjendur. Störfin geta verið bæði í 100% starfshlutfalli og hlutastörf. Almennar umsóknir eru geymdar í grunninum í allt að 6 mánuði.
Við hvetjum þig einnig til að fylgjast með auglýstum störfum á heimasíðu Reykjanesbæjar og sækja sérstaklega um ef þú hefur áhuga á ákveðnu starfi.
Vinsamlegast athugið að almennum umsóknum er ekki svarað sérstaklega.
Upplýsingar gefur Mannauður og starfsumhverfi, starf@reykjanesbaer.is
Umsóknarfrestur til: 31. desember 2026
Sækja um þetta starf